Nettó

Nettó

Sveigjanleiki Kaupmennska Áræðni Samvinna
Nettó
PrófíllÖll störf
Um vinnustaðinn
Nettó byggir á öflugri liðsheild og leggur áherslu á að starfsmenn búi yfir góðri faglegri þekkingu, áræðni og sveigjanleika. Unnið er markvisst starf innan fyrirtækisins til að viðhalda þeim gildum. Verslanir Nettó eru staðsettar á 16 stöðum á landinu.

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni með það að markmiði að virkja íslenskt viðskiptalíf til að verða að fyrirmynd jafnréttis fyrir aðrar þjóðir.
Krossmói 4, 260 Reykjanesbær
Gildin okkar
Sveigjanleiki til að uppfylla fjölbreyttar þarfir viðskiptavina um allt land sem endurspeglar fjölbreytt en um leið vandað og hnitmiðað vöruval á sanngjörnu verði. Kaupmennska sem byggir á skýrum ferlum og innri samskiptum, vöru- og þjónustugæðum, fag- og vöruþekkingu starfsfólks og útliti og ásýnd. Áræðni sem vísar á mikilvægi þess að ryðja úr vegi hugarfarslegum hindrunum og finna sífellt nýjar og betri leiðir til þjónustu og rekstrar um leið og samkeppni einkennist af sjálfstrausti og frumkvæði á markaði.
Mannauður
Mannauðsstefna Samkaupa er hluti af heildarstefnu fyrirtækisins en eitt af lykilatriðum í velgengni Samkaupa felst í mannauðnum. Samkaup býður upp á tækifæri fyrir starfsfólk sitt að þróast í starfi innan félagsins í samræmi við metnað, hæfni og kunnáttu Samkaup vill tryggja gott hvetjandi starfsumhverfi og veita starfsfólki sínu tækifæri til að vaxa og dafna í starfi þar sem áhersla er á liðsheild sem vinnur eftir gildum fyrirtækisins.

501-1000

starfsmenn

Vinnutími

Samkaup leitast eftir að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með gagnkvæmum sveigjanleika eftir því sem við verður komið á þörf er á.

Hreyfing

Starfsfólk Samkaupa fær árlegan íþróttastyrk.

Nýjustu störfin

Engin störf í boði

Heilsa
Samkaup hvetur starfsfólk til heilsueflingar með ýmsum hætti og er starfólki boðinn íþróttastyrkur árlega. Samkaup býður einnig upp á sérstaka velferðaþjónustu sem er ætlað að stuðla að auknum lífsgæðum starfsmanna. Öllu starfsfólki Samkaupa býðst fjölbreytt úrval af þjónustu sem unnin er í samstarfi við Heilsuvernd. Það eru margir þættir sem geta haft áhrif á fólk utan vinnunnar og Samkaup vill rétta út hjálparhönd þegar starfsfólk finnur að það þurfi þess hvort sem það sé þjónusta sálfræðings, lögfræðings, næringafræðings, svefnráðgjafa, fara í alsherjar heilsugreiningu, til markþjálfa, í fjármálaráðgjöf eða fjölskylduráðgjöf, vantar aðstoð sérfræðilækna og svo framvegis.
Jafnrétti
Samkaup hafa sett sér skýra stefnu í jafnréttismálum sem er órjúfanlegur hluti af heildarstefnu félagsins. Stefna Samkaupa er að gæta jafnréttis milli kynjanna, kynþátta og trúar og að starfsfólk sé metið óháð uppruna, aldri eða kyni þegar kemur að ráðningum, starfsþróun, símenntun og launakjörum. Framkvæmdastjórn Samkaupa hefur skuldbundið sig í allri stefnumótun að stuðla að auknu jafnrétti og samþykkti jafnréttisáætlun þar sem lögð er áhersla á að allt starfsfólk sé metið að verðleikum og njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum. Samkaup hefur formlega hlotið vottun (25.janúar 2019) um að standast kröfur jafnlaunastaðalins ÍST 85:2012 og leyfi Jafnréttisstofu til að nota jafnlaunamerkið 2019 – 2022.
Umhverfið
Samkaup ætla að vera leiðandi í umhverfismálum á smásölumarkaði. Samkaup leggja áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni og nýta auðlindir eins og kostur er. Umhverfisstefnan nær til allrar starfseminnar. Við viljum að starfsmenn hugsi um um umhverfið í daglegum störfum og fylgi umhverfisstefnunni með án undantekninga. Lög og reglur í umhverfismálum eru uppfylltar á öllum starfsstöðvum. Samkaup er fyrsta matvörukeðjan á Íslandi sem vinnur markvisst að því að loka sínum frystum til að bæta gæði á vörum og spara raforku. Samkaup hf. var eitt af þeim 103 fyrirtækjum og stofnunum sem hafa skuldbundið sig til að setja sér markmið og fylgja þeim eftir með aðgerðum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs. Auk þess verður árangur mældur og upplýsingum um stöðu mála miðlað reglulega. Yfirlýsing þessi um aðgerðir í loftslags- og umhverfismálum fellur vel að stefnu Samkaupa um minni sóun og betri nýtingu orku. Samkaup er stoltur þátttakandi og er um leið eina dagvörukeðjan sem tekur þátt í þessu göfuga verkefni.
Menntun og fræðsla
Samkaup leggur ríka áherslu á að styðja starfsfólk sitt áfram til starfsþróunar og er eitt af megin markmiðum fyrirtækisins að starfmenn Samkaupa fái tækifæri til að stunda nám samhliða vinnu sem opnar á tækifæri til frekari starfsþróunar. Samkaup hefur lagt áherslu á að búa til leiðir fyrir verslunarfólk sitt til að nýta reynslu sína áfram og fá hana metna til framhaldsskólaeininga í gegnum raunfærnimat á móti viðmiðum vinnustaðanáms fyrirtækisins. Einingarnar getur starfsfólk svo nýtt meðal annars áfram í Fagnám verslunar og þjónustu sem kennt er í Verslunarskóla Íslands. Starfsfólki Samkaupa býðst að halda áfram í diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun og þaðan í BS í viðskiptafræði eða annað háskólanám sem getur nýst í starfi. Allar þessar námsleiðir eru styrktar af Samkaupum og hægt að stunda samhliða vinnu.